Rithöfundurinn Salman Rushdie hlýtur Alþjóðleg bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness árið
2024 og mun hann veita verðlaununum viðtöku í Háskólabíó föstudaginn 13. september kl.
17.30. Aðgangur er ókeypis en nauðsynlegt er að skrá sig fyrir miða.
** Óheimilt er að koma með bakpoka og stórar töskur á viðburðinn **
** Einungis er hægt að skrá fjóra miða á sama miðahafa.**
Forsætisráðherra mun afhenda Salman Rushdie verðlaunin og svo munu Halla Oddný
Magnúsdóttir og Halldór Guðmundsson leiða samræður við Rushdie á sviði eftir afhendinguna.
Bókin Hnífur, þar sem Rushdie lýsir banatilræðinu og afleiðingum þess, kemur út á íslensku hjá
Forlaginu í þýðingu Árna Óskarssonar af þessu tilefni og hægt verður að kaupa áritað eintak af
bókinni á viðburðinum.