Tix.is

Event info

Útileikhús um unglinga og illgresi.

Athugið - breyttar dagsetningar!

Illgresið er okkar óvinur. Þetta eru kraftmiklar og frekar plöntur sem ógna því gróðurfari sem þegar er til staðar. Þær geta spírað mjög snemma á vorin og því berum við ábyrgð á að uppræta illgresið áður en það nær að mynda fræið. En ræturnar ná oft djúpt ofan í jarðveginn, og þá þarf meira til en litlar skóflur, einfara og hrífur.

Flokkstjórinn fer aftur af stað sumarið 2024 með þremur sýningum, einni í Kópavogi og tveimur á Vestfjörðum. Föstudaginn 19. júlí verður sýningin sýnd á sínum heimastað í Grandahvarfi á Vatnsenda, áður en hún fer á vestur á Patreksfjörð helgina 10.-11. ágúst. Sýningin á Patreksfirði fer fram á Friðþjófstorgi laugardaginn 10. ágúst kl 19:30. Sunnudaginn 11. ágúst verður sýningin á Tungunni, Bíldudal kl 16:30.

Flokkstjórinn er einleikur sem enginn má láta framhjá sér fara, fluttur undir berum himni og fjallar um þá gríðarlega erfiða verkefni sem það getur verið að vinna með unglingum. Leiksýningin byggir á reynslu Hólmfríðar sem flokkstjóri í unglingavinnu en starfið veitti innsýn í illa innrætt samskipti unglinga, eineltismenningu og hve grimm mannskepnan getur verið þegar hún þráir ekkert heitar en að tilheyra hópnum. Er til slæmt fólk? Eða einungis slæm hegðun? Því jafnvel óvæntasta fólk getur brotið þig niður, sama hversu mikil völd þú telur þig vera með.

Verkið var valið til sýninga á hátíðunum RVK Fringe og Act Alone á Suðureyri síðasta sumar, en hefur einnig verið sýnt á Seltjarnarnesi, Stykkishólmi og Grundarfirði. Sem áður fyrr er frítt inn á sýninguna en panta þarf miða á TIX.is.


Sviðið í Kópavogi er staðsett á horni Elliðahvammsvegar og Grandahvarfs. Strætó 2 stoppar hjá hringleikahúsinu, á biðstöð sem heitir Elliðahvammur. Einnig er nóg er af bílastæðum við sviðið. Verkið er sýnt utandyra, komið klædd eftir veðri. Áhorfendur sitja á grasþöktum tröppum. Sniðugt er að koma með pullur, tjaldstóla eða hvað annað sem þægilegt er að sitja á á meðan sýningunni stendur.

Lengd: 40 mín.


//

Höfundar:
Hólmfríður Hafliðadóttir og Magnús Thorlacius

Leikkona:
Hólmfríður Hafliðadóttir

Leikstjóri:
Magnús Thorlacius

Tónlist:
Iðunn Einars

Aðstoð við plakat:
Tómas Óli K. M.

Myndbönd:
Hákon Örn Helgason


Sérstakar þakkir:

Vinnuskólinn í Kópavogi, Starfsfólk Molans, Steinunn hjá Starfsleikni, Soffía hjá Kópavogsbæ, fyrrum flokkstjórar, vinir og allir unglingarnir

Verkefnið í ár er styrkt af menningar- og ferðamálaráði sameinaðs sveitarfélags Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar.