Tix.is

Event info

Í þessu kraftmikla verki danshöfundarins Hoomans Sharifi mætast tveir ólíkir hópar með ólíkan bakgrunn — street-dansarar og samtíma- dansarar. Hvor hópur á sér sinn einstaka ryþma og tungumál. Stefnumót þeirra einkennist af forvitni og sameiginlegri ástríðu fyrir hreyfingu. Þau nálgast hvert annað af varfærni og yfirstíga landamæri með líkamstjáningu sinni. Þannig skapast rými þar sem einstaklingnum er fagnað og fjölbreytileikanum
er tekið opnum örmum. Reynslan er ný af nálinni fyrir alla dansarana, þenur út mörk og víkkar sjóndeildarhringinn.

Tambur-tónlist Arash Moradi er sameiningar- afl í þessum menningarlega samruna, bæði fyrir dansarana og áhorfendur, og lifandi tónlistarflutningur hans fyllir andrúmsloftið af ókunnugum en hrífandi laglínum.

Hooman Sharifi fæddist í Íran en kom fjórtán ára gamall einn síns liðs til Noregs. Fyrsta dansreynsla hans var í heimi hipphopps og street-dans. Hann útskrifaðist sem danshöfundur frá Listaháskólanum í Osló árið 2000 og hefur síðan markað sér stöðu sem pólitískur, áleitinn og öflugur listamaður.

Verkið er á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík.