Tix.is

Event info

Í þessari bráðfjörugu og kostulegu sýningu fyrir börn á leikskólaaldri sjáum við vaska kvennarokksveit skapa heilan heim úr harla óvenjulegum efnivið - límbandi!

Konurnar glíma við óstýrilátt límbandið sem vefst þvers og kruss um rýmið og jafnvel þær sjálfar og afhjúpar þannig falinn heim. Hver þráður segir sögu og það sem birtist á sviðinu kallar fram hughrif um skjól, umbreytingu og samveru. Þessi skemmtilega sýning hvetur börn jafnt sem fullorðna til að koma auga á og gleðjast yfir hinu óvenjulega í því allra hversdagslegasta.

Scoooootch! er án orða og hentar fyrir tveggja ára og eldri.