The Vintage Caravan í Iðnó 8. Des
Íslenska rokksveitin The Vintage Caravan er nýlega komin heim af mánaðarlöngu tónleikaferðalagi um Evrópu og hefur ákveðið að taka lokatónleika ferðalagsins í Iðnó 8. Desember.
The Vintage Caravan er eitt kraftmesta og duglegasta tónleikaband landsins og verða þetta lokatónleikar sveitarinnar í ár.
Sérstakir gestir verða Volcanova, sem hituðu upp fyrir strákana á tveimur tónleikaferðalögum um Evrópu.
Ekki láta þessa veislu framhjá þér fara!
Miðaverð er 4490 í forsölu og 4990 við hurð