Félagið Ísland-Palestína boðar til samstöðu- og styrktartónleika fyrir Palestínu í Gamla Bíó fimmtudaginn 16. nóvember.
Fram koma: Páll Óskar, JFDR, Úlfur Úlfur og Cyber
Dagskrá:
19:00 – Hús opnar
19:45 – Stuttmynd frá Amnesty International um aðskilnaðarstefnu Ísraels
20:00 – Tónleikadagskrá hefst
Miða er hægt að kaupa á Tix.is og við hurð.
Miðaverð er 2.500 krónur.
Allur ágóði rennur í neyðarsöfnun handa íbúum Gaza.
Varningur til styrktar Palestínu verður til sölu á tónleikunum, s.s. bolir, taupokar og Keffiyeh treflar.
Þeir sem vilja styðja málstaðinn en komast ekki á tónleikana er bent á að leggja inn á reikning neyðarsöfnunar félagsins:
Reikn. 542-26-6990, kt. 520188-1349 – skýring "tonleikar".
Við þökkum listamönnunum, Gamla Bíói og öllum þeim sem lagt hafa hendur á plóg kærlega fyrir stuðninginn.
Brjótum niður múrinn! Frjáls Palestína!
Sjáumst á fimmtudagskvöld.