Kanarí mætir í Tjarnarbíó í haust með glænýja sýningu sem er blanda af sketsum og spjallþætti eftir röð uppseldra sýninga í Þjóðleikhúsinu og tvær þáttaraðir á RÚV.
Óvæntar uppákomur og ógrynni af karakterum sem hafa það eina markmið að sprengja salinn úr hlátri. Svolítið eins og ef Saturday Night Live og Vikan með Gísla Marteini myndu eignast barn og barnið væri leiksýning.
Hópurinn:
Guðmundur Felixson
Steiney Skúladóttir
Guðmundur Einar Láru-Sigurðsson
Eygló Hilmarsdóttir
Pálmi Freyr Hauksson
Máni Arnarson