Tix.is

Event info

Íslandsmeistaramót FM957 í fótbolta 2023!

ATH!!
Vegna veðurskilyrða höfum við tekið þá ákvörðun að færa mótið til 19. ágúst. Það hefur enginn gaman af úti fótbolta í 13 metrum á sekúndu og monsúnregni í 6 gráðu hita. Við biðjumst afsökunar á óþægindum sem þetta kann að valda en hlökkum til að sjá ykkur í bongó blíðu í ágúst!
Við hvetjum hinsvegar sem flesta til að halda í liðin þar sem aðsókn var gríðarlega í mótið og færri komast að en vildu.

FM957 heldur fótbolta mót laugardaginn 19.ágúst á BB King vellinum hjá Stjörnuheimilinu Ásgarði í Garðabæ.
Spilað verður 5 á 5, hámarks fjöldi leikmanna í liði eru 7 og eru lið blönduð.
Hver leikur er 5 mín og spilað verður á tveim völlum. Leikið er eftir riðlafyrirkomulagi sem endar með útsláttarkeppni þar sem eitt lið hreppir titilinn Íslandsmeistarar FM957 í fótbolta 2023.

Starfsmenn FM957, Egill Ploder og Rikki G verða umsjónarmenn og kynnar mótsins og sjá um að allt fari sómasamlega fram, fá til sín góða gesti og lýsa viðureignunum.

Listgjaldið á mótið eru 15.000kr eða rétt rúmlega 2000kr á mann fyrir 7 manna lið.
ATH að leikmenn úr efstu þrem deildum í karladeild og efstu tveim í kvenna eru ekki gjaldgengir í mótið.
Verðlaun í keppninni eru þátttökugjöldin sem skiptast niður á efstu þrjú sætin (60% fyrsta sæti, 30% annað og 10% þriðja) ásamt glæsilegum verðlaunum frá samstarfsaðilum.
Ekki láta þetta fram hjá þér fara! Við mælum með að lið verði tímanlega í að skrá sig þar sem mjög takmarkaður fjöldi liða kemst að á mótinu