Tix.is

Event info

Um páskana verður barna- og þáttökuverkið Manndýr eftir Aude Busson sett upp í Edinborgarhúsinu. Verkið var frumsýnt í Tjarnarbíó í mars 2022 og er nú sett upp á Ísafirði.
Tvær sýningar verða í boði, á Skírdag 6. apríl kl. 16:00 og á föstudaginn langa, 7. apríl kl.
11:00.


Manndýr er sýning um hlutverk mannsins út frá sjónarhorni barna. Sýningin er á mörkum þess að vera leikverk, innsetning og listasmiðja. Gestum boðið inn í heim þar sem hægt er að upplifa með eyrum, augum og höndum, sjálf eða í samvinnu. Við gefum okkur tíma til að spyrja spurninga sem fá svör eru við og dvelja í heimi þar sem börn segja alla söguna.

Í sýningunni er samband barna og fullorðinna skoðað og spurningunni um hlutverk þeirra á jörðinni velt upp.


„Þegar maður hugsar út í það, þá er maður bara til af því að maður er til...“
„Eða til, til að gefa dýrunum?“
„Til… til að fjölga ormunum?“
„Eða erum við til fyrir heiminn?“
„En aftur á móti, þá endist jörðin ekki að eilífu, þannig að ef maður hugsar úti það,
þá getur maður ekki bara haldið áfram að fæðast, fæðast og fæðast...“


Af hverju er maðurinn til? Af hverju er barn til? Hvað gera þau og til hvers?


Hér má nálgast styklu úr sýningunni. 
Hér má finna fræðslu sem tengjast sýningunni.


Aðstandendur:
Sviðshöfundur, listrænn stjórnandi & flytjandi: Aude Busson
Leikmynda- og búningahönnuður & sviðshöfundur: Sigríður Sunna Reynisdóttir
Tónlist & hljóðmynd: Björn Kristjánsson
Heimspeki leiðbeinandi: Marion Herrera
Leikmyndagerð: Steinunn Marta Önnudóttir
Búningagerð: Ólöf Ágústína Stefánsdóttir
Ljósahönnun: Kjartan Darri Kristjánsson
Framkvæmdastjórar: Ingibjörg Huld Haraldsdóttir & Renaud Durville
Raddir barnanna: Nemendur í Landakotsskóla
Söngur: Jelena Ciric
Básúna: Ingi Garðar Erlendsson
Aude Busson er sviðslistar kona sem hefur áhuga á að skapa sýningar og viðburði sem
byggja á þátttöku áhorfenda og þá sérstaklega með samvinnu barna og fullorðinna. Síðasta
verk hennar “Ég elska Reykjavík” var fjölskyldugöngsýning og var tilnefnd til
Grímuverðlauna.
Sigríður Sunna Reynisdóttir er sviðshöfundur og hönnuður. Hún hefur unnið
leikmyndir, búninga og leikbrúður fyrir fjölda sýninga í Þjóðleikhúsinu,
Borgarleikhúsinu, í Tjarnarbíó og víðar síðustu ár, auk þess að framleiða eigin sviðsverk.
Björn Kristjánsson eða Borko er tónlistarmaður og grunnskólakennari. Hann hefur
unnið bæði í leikhúsi og í tónlistarheiminum í tæp 20 ár og leitt fjölda
tónlistar verkefna með börnum.

Umsögn frá vinum á Laufásborg:
,,Mikið rosalega var gaman að fá að sjá Manndýr. Það var mikil upplifun fyrir unga sem
aldna, vakti áhuga allra í hópnum og hélt athyglinni einstaklega vel. Verkið hefur mikla
fjölbreytni og breidd hvað varðar tempó og umfang, börnunum þótti forvitnilegt að átta sig á
hvað var að gerast í hinu innhverfa upphafi og stórskemmtilegt að taka þátt þegar boðið var
upp á það seinna í verkinu. Hvenær er maður maður og hvenær er maður dýr? Samband og
skörun þessarra fyrirbæra og hugtaka er skoðað frá fersku sjónarhorni gegnum upptökur af
vangaveltum barna, magnþrunginn dans, margvíslega fallega og viðeigandi leikmuni, tónlist
og annað efni og útkoman er spennandi og hugvíkkandi heild sem er óhætt að mæla með!
Kærar þakkir fyrir okkur!''
- Ómar & Ari.