Tix.is

Event info

Svavar Knútur fagnar útgáfu sinnar fjórðu sólóplötu með tónleikum í Gamla bíó þriðjudagskvöldið 6. október næstkomandi. Platan, sem er æðisleg, ber nafnið Brot (the breaking).

Á tónleikunum mun Svavar flytja nokkur af sínum uppáhalds lögum ásamt plötunni Brot í heild sinni. Honum til halds og trausts verður myndarleg hljómsveit og glæsilegir meðsöngvarar. Þar á meðal hin tékkneska Markéta Irglóva og Kristjana Stefáns, en báðar eru þær miklar söngvinkonur Svavars Knúts.

Þá mun Lára Rúnars hita upp með frábærum lögum af nýútkominni plötu sinni, Þel.

Platan kemur einnig út á Vínyl með annarri myndskreytingu, en það er dóttir Svavars Knúts, Dagbjört Lilja, sem að vanda skreytir plöturnar.

Dimma gefur plötuna út og verður hún að sjálfsögðu til sölu á staðnum á hagstæðu tónleikaverði.