Efnisskrá kórsins að
þessu sinni er bandarísk kórtónlist og kennir þar ýmissa grasa. Flutt verða
nokkur af glæsilegustu nýrri kórverkum höfuðtónskálda Bandaríkjanna. Einnig eru
á efnisskránni þjóðlög, trúarleg lög og þekkt popplög í nýjum og afar
metnaðarfullum útsetningum. Meðal lagahöfunda má nefna Paul Simon, Eric
Whitacre, Jake Runestad, Billy Joel, Ola Gjeilo, Réne Clausen og Morten
Lauridsen. Stjórnandi Kammerkórs Norðurlands er sem fyrr Guðmundur Óli
Gunnarsson en kórfélagar eru flestir tónlistarmenntaðir og/eða atvinnufólk í
tónlist og koma víða að af Norðurlandi. Kórinn hefur frá stofnun haft að
markmiði að flytja nýja íslenska kórtónlist (raunar með ýmsum öðrum verkefnum)
og gefið út þrjá hljómdiska, síðast árið 2020, en þar er að finna ljóð Davíðs
Stefánssonar við ný og eldri íslensk lög. En að þessu sinni er stefnan tekin
til Bandaríkja Norður-Ameríku.