Tix.is

Event info

Óperufélagið Norðuróp og Tónlistarskóli Reykjanesbæjar 


Requiem (Sálumessa) eftir Verdi 

Stapi - Hljómahöll - Reykjanesbæ 


Óperufélagið Norðuróp og Tónlistarskóli Reykjanesbæjar munu flytja Sálumessu eftir Giuseppe Verdi í Stapa, Hljómahöll í Reykjanesbæ. Sálumessan er um það bil 90 mínútna langt tónverk fyrir fjóra einsöngvara, kór og sinfóníuhljómsveit og er ein allra þekktasta sálumessa tónbókmenntanna. Verkið er flutt árlega víða um heim en afar sjaldan hér á landi.
Á þessum tónleikum verður verkið flutt af 35 manna sinfóníuhljómsveit, 60 manna kór einsöngsmenntaðra söngvara, langt kominna söngnemenda, tónlistarkennara, þjálfaðra áhugasöngvara og fjórum einsöngvurum. Stapi í Hljómahöll er glæsilegur tónleikasalur með stórt svið, um 400 sæti í sal og á svölum og hljómburður er sérlega góður.


Stjórnandi: Jóhann Smári Sævarsson

Konsertmeistari: Una Sveinbjarnardóttir


Einsöngvarar: 

Hallveig Rúnarsdóttir, sópran 

Guja Sandholt, mezzosópran

Jóhann Friðgeir Valdimarsson, tenor 

Keith Reed, bassi

Óperufélagið Norðuróp stofnaði fyrir nokkrum árum óperustúdíó í Reykjanesbæ í samvinnu við Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og Hljómahöll, með uppfærslu á óperunni „Brúðkaup Fígarós“ eftir W. A. Mozart. Verkefnið var opið öllum söngvurum og söngnemendum Tónlistarskólans sem og öðrum efnilegum söngvurum á Suðurnesjum og annars staðar af landinu. Aðstæður eru til staðar í glæsilegri Hljómahöll. 


Eftir mjög vel heppnaða og fjölsótta uppfærslu Óperufélagsins Norðuróps og Tónlistarskóla Reykjanesbæjar á söngleiknum „Fiðlarinn á þakinu“ eftir J. Bock sem sýndur var í Stapa, Hljómahöll, haustið 2019 og þann mikla áhuga þeirra sem tóku þátt í því viðamikla verkefni og eftir vel heppnaðan flutning á „Mozart Requiem“ vorið 2022, þá hefur verið ákveðið að halda samstarfi Óperufélagsins Norðuróps og Tónlistarskóla Reykjanesbæjar áfram og ráðast í flutning þessa magnaða verks, Sálumessu eftir Giuseppe Verdi.