Vegna
mikillar eftirspurnar ætla jazzsöngkonurnar Kristjana Stefánsdóttir, Guðlaug
Dröfn, Rebekka Blöndal, Ragnheiður Gröndal og Sigrún Erla að slá aftur til stórtónleika í Salnum til heiðurs goðsögninni Ellu Fitzgerald.
Með þeim leikur
kvartett Karls Olgeirssonar.
Kynnir verður engin önnur en Guðrún Gunnarsdóttir tónlistar og útvarpskona
Kvartett Karls Olgeirssonar skipa þeir:
Karl Olgeirsson, píanó
Ásgeir Ásgeirsson, gítar
Þorgrímur Jónsson, kontrabassi
Magnús Trygvason Eliassen, trommur