Mozart við kertaljós í fjórum kirkjum
Camerarctica heldur sína árlegu kertaljósatónleika í kirkjum nú rétt fyrir jólin í þrítugasta sinn. Hópurinn hefur leikið ljúfa tónlist eftir Mozart í þrjátíu ár og þykir mörgum ómissandi að koma úr miðri jólaösinni inn í kyrrðina og kertaljósin í rökkrinu. Hópinn skipa að þessu sinni þau Ármann Helgason, klarinettuleikari, Eydís Franzdóttir óbóleikari, Hildigunnur Halldórsdóttir og Bryndís Pálsdóttir fiðluleikarar, Svava Bernharðsdóttir víóluleikari og Sigurður Haldórsson sellóleikari.
Á dagskránni verða tvær af perlum Mozarts Óbókvartettinn kv.370 og hinn margrómaði Klarinettukvintett kv. 581. Að venju lýkur tónleikunum á því að Camerarctica leikur jólasálminn góða,” Í dag er glatt í döprum hjörtum” úr Töfraflautunni eftir Mozart og verða kirkjurnar einungis lýstar upp með kertaljósum.
Tónleikarnir verða í eftirfarandi kirkjum:
Hafnarfjarðarkirkju mánudagskvöldið 19. des
Kópavogskirkju þriðjudagskvöldið 20. des
Garðakirkju miðvikudagskvöldið 21. des
Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtudagskvöldið 22. des
Tónleikarnir eru klukkustundarlangir og hefjast þeir allir klukkan 21.00.
Aðgangseyrir er kr. 3500 og kr. 2500 fyrir nemendur og eldri borgara og frítt inn fyrir börn.