Tix.is

Event info


Innifalið í miðaverði er NBI-forystugreining að verðmæti 22.900,-

Stjórnendur þurfa að takast á við nýjan veruleika og tíðari og umfangsmeiri breytingar en nokkru sinni fyrr – og marga þeirra skortir nauðsynleg tól og tæki til að bregðast rétt við.


Verkferlar, verklag, samrunar, samskipti og sjálfvirkni hafa og munu breytast verulega samkvæmt úttekt ráðgjafafyrirtækisins McKinsey og á slíkum tímum nauðsynlegt aðfylgjast með.


Margir af færustu sérfræðingum heims á sviðum stjórnunar, breytingarstjórnunar og leiðtogahæfni koma fram á alþjóðlegri ráðstefnu í Bæjarbíói í Hafnarfirði í tilefni af 10 áraafmæli Profectus, en þar munu þeir deila hugmyndum sínum og reynslu sem geta umbreytt hugsun, viðhorfi og færni íslenskra stjórnenda til að finna skilvirkar lausnir á því eina sem hægt er að ganga út frá sem vísu; að breytingar verða stærri, tíðari og hraðari en nokkru sinni fyrr.

Meðal fyrirlesara á ráðstefnunni má nefna:

 Metsöluhöfundinn Tim Hurson, sem hefur hjálpað stjórnendum og frumkvöðlum í yfir 40 löndum að finna snillingin innra með sér. Bók hans, Think Better, er biblía í sjálfu sér.


Metsöluhöfundinn Dorte Nielsen, sem varpar ljósi á leyndarmál hins ofurskapandi hugsuðar, en skapandi hugsun er besta mótefni við stöðnun og stuðlar að sjálfbærri þróun í leiðtogahlutverki


Dr. Marc og Samantha, sem hafa komið fram með nýja sýn á fylgjenda- og forystufærni og hverju það skilar.


Dr. Puleng Makhoalibe, sem var valin ein af 20 áhrifamestu kvenleiðtogum heims og veit að það að kveikja loga sköpunarkraftsins leiðir til breytinga.


Ingvar Jónsson, alþjóðlegan stjórnendamarkþjálfa, sem var valinn einn af 101
áhrifamestu markþjálfum í heimi á „Coaching World Congress 2020“ sem bendir á að það er listform að leiða breytingar sem skila árangri, enda er tilfinningagreind
leiðtogans forsenda árangurs!


Jim Ridge, sem er listamaður og sérfræðingur í breytingastjórnun með meira en 30 ára reynslu með alþjóðlegum fyrirtækjakeðjum. Hann er sérfræðingur í að skapa sameiginlega sýn með starfsfólkinu, af starfsfólkinu, fyrir starfsfólkið - svo að eignarhaldið sé þeirra.

 Valdimar Þór Svavarsson, sem er leiðandi sérfræðingur á sviði meðvirkni og
áhrifum (skaða) sem hún getur haft á stefnumótun og menningu fyrirtækja.