Tix.is

Event info

ÉG BÝÐ MIG FRAM er örverkaleiksýning þar sem leikstjórinn Unnur Elísabet býður listamönnum úr ólíkum áttum til samstarfs. Útkoman er óvenjuleg leikhúsupplifun, suðupottur nýrra hugmynda, eins konar smáréttaveisla fyrir áhorfendur.


Leikstjóri: Unnur Elísabet Gunnarsdóttir

Aðstoðarleikstjóri: Ellen Margrét Bæhrenz

Tónskáld: Annalísa Hermannsdóttir

Leikmynda- og búningahöfundur: Sara Hjördís Blöndal

Ljósahönnuðir: Hafliði Emil Barðason og Juliette Louste

Flytjendur:

Anais Barthe, dansari

Annalísa Hermannsdóttir, sviðshöfundur og tónskáld

Berglind Halla Elíasdóttir, leikkona

Bryndís Ósk Þ. Ingvarsdóttir, sviðshöfundur

Ellen Margrét Bæhrenz, leikkona og dansari

Friðrik Margrétar- Guðmundsson, tónlistarmaður

Júlíanna Ósk Hafberg, myndlistarkona

Thomas Burke, sirkuslistamaður

Tinna Þorvalds Önnudóttir, óperusöngkona og leikkona

Unnur Elísabet Gunnarsdóttir, leikstjóri, leikkona og dansari


Þetta er í fjórða sinn sem hátíðin er sett upp og að þessu sinni er útgangspunktur sýningarinnar Nýr heimur. Unnur Elísabet býður nú átta ólíkum listamönnum í dúett og tvinnar þannig saman ólík listform, leiklist, hreyfingu, myndlist og tónlist. Sýningin fjallar um ólíka heima og heimsenda, á persónulegum eða hnattrænum skala. Seríur 1 og 3 hlutu tilnefningar til Grímunnar og sería 2 var valin sýning ársins á Reykjavík Fringe Festival.