Tix.is

Event info

HRINGRÁS

Lengd: 50 min

Hringrás er nýtt verk eftir Þyri Huld Árnadóttur. Verkið er unnið í samstarfi við Íslenska dansflokkinn, Urði Hákonardóttur tónskáld, Júlíönnu Láru Steingrímsdóttur búninga- og leikmyndahönnuð og Sögu Sigurðardóttur ljósmyndara sem sér um myndbandsinnsetningu í sviðsmynd.

Hringrás er dansverk til heiðurs kvenlíkamanum.

Verkið samtvinnar myndlist, tónlist og dans sem mynda heildræna hringrás.

Öll erum við í sömu hringrásinni, plöntur, dýr og við mannfólkið.

Fræ og vatn verða að blómi.

Egg og sæði að manneskju.

Konan gengur með barnið, kemur þvi´ i´ heiminn og nærir.

Li´kaminn umturnast sem er fæstum konum auðvelt.

Við þurfum að elska líkamann okkar, sama hvort hann sé feitur, mjór, langur, lítill, slitinn eða sléttur.

Við lifum öll í hringrás.

Þyri Huld Árnadóttir hlaut grímuna sem dansari ársins árið 2015 og 2018 fyrir hlutverk sín í verkunum Sin og Hin lánsömu. Hún hóf feril sinn hjá Íslenska dansflokknum árið 2010 og hefur tekið þátt í fjölbreyttum verkefnum sem dansari og danshöfundur síðan. Þyri hefur samið þrjú verk um ofurhetjurnar Óð og Flexu í samstarfi við Hannes Þór Egilsson 2014-2018 sem hlutu tilnefningar fyrir flokkunum barnasýning ársins og danshöfundur ársins.

Verkið er styrkt af Sviðslistarráði og var valið samstarfsverkefni Íslenska dansflokksins veturinn 2022 – 2023.

 

Hringrás verður frumsýnt 3. febrúar, 2023 á Litla sviði Borgarleikhússins.