Menningarfélag Keflavíkur stendur fyrir heimatónleikum í gamla bænum á Ljósanótt þar sem íbúar bjóða fólki heim í tónleikaveislu.
Fjórar hljómsveitir spila í jafnmörgum húsum í gamla bænum í Keflavík. Hver hljómsveit leikur tvisvar, 40 mínútur í senn. Dagskrá hefst kl. 21:00 og aftur kl. 22:00. Gestir geta því valið amk tvo tónleika eða gengið á milli og fengið brot af öllu.
Fram koma þessir listamenn af Suðurnesjum:
Æla
Trílogía
Gálan
SíGull
Gestir fá armband til að rölta á milli húsa og kort af svæðinu í Duushúsum, menningar- og listamiðstöð Reykjanesbæjar á opnunartíma.
Frekari upplýsingar veitir Sara Dögg Gylfadóttir í síma 699 2604.
Samstarfs- og styrktaraðilar heimatónleikanna eru; Reykjanesbær, Ölgerðin, K. Steinarsson og Kosmos&Kaos.