Event info
Það er komið að því! Loksins alvöru Réttaball á mölinni. Tvær af öflugustu hljómsveitum landsins, Á móti sól og Papar leiða saman hesta sína undir einu þaki í Reiðhöllinni Víðidal í Reykjavík.
Bæði Á móti sól og Papar hafa spilað á óteljandi sveitaböllum, réttaböllum já og allskonar böllum í gegn um tíðina. Nú hafa þessar (hljóm)sveitir tekið höndum saman í samvinnu við Reiðhöllina í Víðidal og bjóða íbúum höfuðborgarsvæðisins upp á þennan risaviðburð
Á svæðinu verður stærsti bjórgámur í Evrópu (Sá hinn sami og var í Hjarta Hafnarfjarðar í sumar) Þar verður úrval af ísköldum úr dælu ásamt hefðbundum réttaballa drykkjum.
Við opnum snemma og hættum seint. Húsið opnar kl 21:00 og ballinu lýkur kl 03:00!
.
ATH Aldurstakmark er 20 ár og ekki er heimilt að taka með sér drykki inn á svæðið!
Reiðhöllin í Víðidal er staðsett í Árbænum í Reykjavík í nágrenni við flest fjölmennustu hverfi borgarinnar!