Tix.is

Event info

Þorláksmessutónleikaröð Bubba Morthens er ein allra langlífasta tónleikahefð í aðdraganda jóla og eru ófáir sem geta ekki hugsað sér aðventuna án þeirra.
Tónleikarnir eru merkilegir fyrir þær sakir að þetta verður í 38. sinn sem Bubbi stendur fyrir Þorláksmessutónleikum. Fyrstu Þorláksmessutónleikarnir voru haldnir á Hótel Borg árið 1985 eða fyrir 38 árum. Þótt staðsetning tónleikana hafi breyst í gegnum tíðina má alltaf stóla á það að Bubbi mæti með gítarinn og perlar sín þekktustu lög á kvöldsins festi og rýnir í samtímann af sinni einstöku snilld.

Árið hefur verið viðburðaríkt hjá Bubba og mætir hann því tvíelfdur í ár.

Þorláksmessu tónleikarnir verða á eftirtöldum stöðum á eftirfarandi dögum.
7. desember Hlégarður Mofellsbæ
8. desember Hotel Selfoss
9. desember Hljómahöll Reykjanesbæ
19. desember Bíóhöllin Akranesi
21. desember Hof Akureyri
23. desember Eldborg Reykjavík

Nánar á Bubbi.is eða samfélagsmiðlu Bubba Morthens.