Tix.is

Event info

Miðarnir rjúka út og höfum við bætt við þriðju tónleikunum!

Af fingrum fram er spjalltónleikaröð með Jóni Ólafssyni sem oftar en ekki nær gestum sínum á flug með söng, sögum og einstakri kvöldstund.

Tveir fyrir einn? Heldur betur! Undrabræðurnir úr Hafnarfirði heimsækja Jón Ólafsson í Salinn með smellasafnið í farteskinu. Þeir eru ekki bara hvers manns hugljúfi heldur líka alveg einstaklega skemmtilegir. Það er því von á góðu þegar Jón spyr þá spjörunum úr um glæsilegan tónlistarferilinn, lífið, tilveruna og FH.