Tix.is

Event info

Loksins, loksins heldur Karlakór Vestmannaeyja vortónleika.

Þar sem ekki var unnt að halda tónleikana síðustu tvö ár er öllu tjaldað til í ár og kölluð til hljómsveit. Hana skipa kórdrengirnir: Birgir Nielsen á trommur, Þórir Geirsson á bassa, Arnar Júlíusson á gítar og Þórir Ólafsson á hljómborð.
Þar að auki tekur kórinn nokkur lög við undirleik hinnar kynngimögnuðu Kitty Kovác.

Stjórnandi Karlakórs Vestmannaeyja er Þórhallur Barðason.