Tix.is

Event info

Maturinn, jörðin og við 2022

Félagið Auður Norðursins í samstarfi við Byggðastofnun og Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS), og með stuðningi fleiri aðila, efna til ráðstefnu um áskoranir og tækifæri innan innlendrar matvælaframleiðslu. Ráðstefnan verður á Hótel Selfossi 7. og 8. apríl.

Um er að ræða spennandi viðburð sem á erindi við alla þá sem hafa áhuga á eða starfa innan matvælaframleiðslu með einum eða öðrum hætti. Fjallað verður um málefnið út frá ýmsum hliðum, s.s. út frá umhverfis- og loftslagsmálum, nýsköpun, atvinnu- og byggðaþróun, heilsusjónarmiðum og fleiri áhrifaþáttum á neyslu og lífsstíl.  Nýjustu stefnur og straumar í matvælaframleiðslu verða tekin fyrir og von er á líflegum og skemmtilegum umræðum, sem geta skipt sköpum til framtíðar.

Hafir þú áhuga á matvælaframleiðslu, stefnumótun innan hennar, nýsköpun á landsbyggðinni, umhverfismálum, heilsu eða næringu, er þetta viðburður sem þú mátt ekki láta fram hjá þér fara!

Þeim sem ekki hafa tök á að taka þátt í ráðstefnunni á Selfossi gefst kostur á að fylgjast með henni í streymi.

Dagskrá ráðstefnunnar Maturinn, jörðin og við er að finna hérá Facebook síðu ráðstefnunnar, og vefsíðunum byggdastofnun.is og sass.is.  

Ráðstefnugjald í sal (veitingar skv. dagskrá innifaldar): kr. 20.000. Ath. verð 18.000 kr. t.o.m. 18. mars.

Ráðstefnugjald í streymi:

7. apríl, kr. 5.000.

8. apríl, kr. 5.000.

7. og 8. apríl, kr. 8.000.


Bakhjarlar ráðstefnunnar eru:

Nettó

Krónan

Hagar

Mjólkursamsalan (MS)

KEA svf.

Kaupfélag Skagfirðinga (KS)

Innviðaráðuneytið

Matvælaráðuneytið

Umhverfis-, orku og loftslagsráðuneytið

Búnaðarsamband Eyjafjarðar