Tix.is

Event info

Nýstofnaður kvartett, Vinakvartettinn, syngur vel valin íslensk og þýsk sönglög. Á dagskránni verða bæði einsöngslög í bland við dúetta og kvartetta. Meðal þeirra verka sem flutt verða eru:

Söngperlur eftir Jórunni Viðar, Eyþór Stefánsson og Sigvalda Kaldalóns

Spænskur ljóðaleikur (Spanisches Liederspiel, Op. 74) eftir Robert Schumann

Tveir kvartettar, Op. 112, eftir Johannes Brahms

Íslenskir kvartettar, Morgunn eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson og Þrjú ljóð fyrir loftslagið eftir Helga R. Ingvarsson

Ekki verður gert hlé á tónleikunum og standa þeir yfir í rúma klukkustund.

Við hlökkum mikið til að sjá ykkur og lýsa upp skammdegið með fallegri lifandi tónlist.

Flytjendur eru:
Jóna G. Kolbrúnardóttir, sópran

Kristín Sveinsdóttir, mazzósópran

Eggert Reginn Kjartansson, tenór

Unnsteinn Árnason, bassi

Þóra Kristín Gunnarsdóttir, píanó


Grímuskylda er á viðburðinum. Miðar verða endurgreiddir ef gestir komast ekki á tónleika vegna sóttkvíar eða einangrunar.