Flutt verða samsöngsverk eftir Þórunni Guðmundsdóttur sem getið hefur sér gott orð fyrir bæði leikrit og óperur. Flestir textarnir eru bráðfyndnir. Orðaleikir og glettni eru í fyrirrúmi auk þess sem tónlistin er á léttum nótum en heillandi og falleg. Hópurinn hefur komið fram víða og verið afskaplega vel af þeim látið og oft af hlátri grátið.
Flytjendur:
Björk Níelsdóttir sópran
Erla Dóra Vogler mezzzó-sópran
Eyjólfur Eyjólfsson tenór
Hafsteinn Þórólfsson baritón
Eva Þyri Hilmarsdóttir píanó
Tónlistarfélagið nýtur stuðnings Menningarfélags Akureyrar, Menningarsjóðs Akureyrar og Tónlistarsjóðs.