Tix.is

Event info

Mozart við kertaljós í fjórum kirkjum

Camerarctica heldur sína árlegu kertaljósatónleika í kirkjum nú rétt fyrir jólin.

            Hópurinn hefur leikið ljúfa tónlist eftir Mozart í tuttugu og níu ár og þykir mörgum ómissandi að koma úr miðri jólaösinni inn í kyrrðina og kertaljósin í rökkrinu. Hópinn skipa að þessu sinni þau Ármann Helgason, klarinettuleikari, Emilia Rós Sigfúsdóttir flautuleikari, Hildigunnur Halldórsdóttir og Bryndís Pálsdóttir fiðluleikarar, Svava  Bernharðsdóttir og Guðrún Þórarinsdóttir víóluleikarar og Sigurður Haldórsson sellóleikari. Á dagskránni verður strengjakvartett kv. 160 og flautukvartett kv 285 eftir Mozarts auk kvintetts fyrir klarinettu og strengi eftir Franz Krommer samtímamann Mozartz.

Að venju lýkur tónleikunum á því að Camerarctica leikur jólasálminn góða,” Í dag er glatt í döprum hjörtum” eftir Mozart.

           Tónleikarnir verða:

          í Hafnarfjarðarkirkju sunnudagskvöldið 19. des,

          í Kópavogskirkju mánudagskvöldið 20. des

          í Garðakirkju þriðjudagskvöldið 21. des

          og í Dómkirkjunni í Reykjavík miðvikudagskvöldið 22. des.

Tónleikarnir eru klukkustundarlangir og hefjast þeir allir klukkan 21.00.

Aðgangseyrir er kr. 3500 og kr. 2500 fyrir nemendur og eldri borgara.  Miðasala við innganginn og á Tix.is

Vinsamlegast sýnið hraðpróf við inngang skv núgildandi sóttvarnarlögum.