Tix.is

Event info

Leikritið The Maids eftir Jean Genet lýsir sögu tveggja systra sem eru þernur frúar um miðbik síðustu aldar í Frakklandi. Uppúr því leikriti höfum við hópurinn skapað verkið Maidz sem lýsir sögu tveggja systra sem eru vinkonur Adríönu í lok fyrsta áratugar þessarar aldar á Íslandi. 

Sagan snýst um valdabaráttu, skynjun valds, hvernig skal komast undan því og umfram allt: hvernig skal vera aðalskvísan, kaldasta tussan og nettasta píkan á svæðinu. Er pláss fyrir fleiri en eina queen bee? Hver er rétta leiðin til að komast burt? Hvernig dílum við við áföll og erfiða hluti á snyrtilegan hátt?  

Þáttakendur / Participants:
Leikstjóri: Katrín Guðbjartsdóttir
Aðstoðarleikstjóri: Egill Andrason
Búningar og Leikmynd: Júlía Grønvaldt Björnsdóttir
Leikkonur: Guðrún Kara Ingudóttir, Gunnur Martinsdóttir Schlüter, og Urður Bergsdóttir
Leiðbeinandi: Anna María Tómasdóttir
Ljósahönnun: Egill Ingibergsson
Tónskáld: Una Torfadóttir og The Black Eyed Peas  

Þakkir / Thanks:
Fatamarkaðurinn Hlemmi
Brynhildur Karlsdóttir
Bekkurinn
Maðurinn sem lánaði mér sendibílinn sinn

Ágrip:
Katrín er sviðslistakona sem hefur sett sinn helsta fókus á samsköpun og leikstjórn undanfarin misseri. Hún leggur áherslu á skoðun einstaklingsins og hegðun hans innan samfélagsins. Gott grín, óheflað málfar og almenn skvísulæti eru áberandi í hennar listsköpun. 

Sýnt í Listaháskóla Íslands, Laugarnesvegur 91, 105 Reykjavík
Rými: Black box - L223
Gengið er inn fyrir neðan hús frá steypta bílastæðinu. Inngangur/hurð næst Sæbrautinni.

*Trigger Warning: í sýningunni er fjallað um kynferðisofbeldi og fleiri áföll
*Strobe ljós eru notuð í sýningunni

Aldurstakmark / Age limit:
16 ára.