Tix.is

Event info

HEIMA-SKAGI er tónlistarhátíð sem haldin er í tengslum við menningarhátíð Skagamanna, Vökudaga sem standa frá 28. október til 7. nóvember.

Á hátíðinni sem fer fram laugardaginn 6. nóvember koma fram 8 listamenn/hljómsveitir sem spila tvisvar sinnum hver í jafn mörgum húsum. Eitt kvöld, 16 tónleikar í það heila í 8 húsum.

Það er spilað í HEIMA-húsum (Vesturgata 71b (Einar Skúla), Vitateig 2 (Martha og Björn), Skólabraut 20 (Guðni og Lilja) og Grundartún 8 (Elfa og Pálmi) - en líka í Báran brugghús, í Bíóhöllinni, í Akraneskirkju og í Blikksmiðju Guðmundar sem er einn af styrktaraðilum hátíðarinnar.  

Þetta er einstök hátíð þar sem nándin við listafólkið er mjög mikil. Fyrsta HEIMA-SKAGA hátíðin var haldin 2019 og þá seldist upp.

Þeir fyrstu stíga á stokk kl. 20.00 og þeir síðustu enda um kl. 23.00. Að dagskrá lokinni er svo „eftirpartí“ á Gamla Kaupfélaginu sem er opið öllum og frítt inn. Þar getur fólk hist og borið saman bækur sínar og heyrða tóna eftir kvöldið.

Það spila ekki allir á sama tíma og þeir sem eru duglegastir að rölta á milli sjá flest atriði.

Miðakaupendur sækja armbönd og prentaða dagskrá á hátíðar-dag á Gamla Kaupfélagið. Tímasett dagskrá verður auglýst síðar.

Þeir sem koma fram á HEIMA-SKAGA hátíðinni í ár eru:

The Vintage Caravan
Svala
Eddi Lár og Andrea Gylfa
Kristín Sesselja
Svavar Knútur
Bjartmar
Lay Low
Unnur Birna og Bjössi Thor