Tix.is

Event info

Skemmtilegustu álfar Íslands snúa aftur með jólaævintýrið sitt!

Þorri og Þura eru að undirbúa jólin. Þegar afi Þorra þarf að bregða sér frá biður hann þau að passa jólakristalinn sem er uppspretta allrar jólagleði í öllum heiminum. En það gengur alls ekki nógu vel hjá þeim, því þau slökkva óvart á honum. Þorri og Þura leggja af stað í ævintýraferð til að finna leið til að kveikja aftur á kristalnum og finna jólagleðina í hjartanu. Þau lenda í ýmsum hremmingum, en allt fer þó vel að lokum. Þetta er hugljúf saga sem minnir okkur á að lítil góðverk geta haft mikil áhrif og kærleikurinn er sterkasta aflið í heiminum.

Álfarnir Þorri og Þura hafa heimsótt þúsundir leikskólabarna með farandssýningum sínum síðan árið 2008, komið fram á ýmsum hátíðum og slógu í gegn með jólaþáttunum Týndu jólin sem sýndir voru á RÚV síðustu jól. Þorri og Þura eru bestu vinir og miklir fjörkálfar, en sýningar þeirra einkennast af gleði, vináttu og dillandi skemmtilegri tónlist.

Sýningartími er samtals tæplega 1klst.

Handrit: Agnes Wild og Sigrún Harðardóttir
Leikstjórn: Sara Martí Guðmundsdóttir
Leikmynd og búningar: Eva Björg Harðardóttir
Ljós: Hafliði Emil Barðason
Dans og sviðshreyfingar: Elísabet Skagfjörð
Leikarar: Agnes Wild, Birna Pétursdóttir og Sveinn Óskar Ásbjörnsson