Tix.is

Event info

TÓNLEIKARNIR FARA FRAM. Athugið að aðeins er um eina tónleika að ræða, þriðjudgskvöldið 21. desember kl. 20.

HRAÐPRÓF
Tónleikagestir þurfa að framvísa vottorði úr hraðprófi eða PCR-prófi sem er ekki eldra en 48 klst. gamalt, eða vottorði um nýlega COVID-19 sýkingu (eldri en 14 daga og yngri en 180 daga). Hraðpófin eru ókeypis.

Bókun og staðsetningar hraðprófa:
hradprof.is
Kleppsmýrarvegur 8 | Harpa | Akureyri

testcovid.is
BSÍ | Kringlan | Keflavík

hradprof.covid.is
Suðurlandsbraut 34 og heilsugæsla um allt land.

 

Tveir af ástsælustu söngvurum landsins, þau Sigríður Thorlacius og Sigurður Guðmundsson, ná loksins að snúa aftur og halda sína árlegu jólatónleika í Eldborgarsal Hörpu þann 21. desember. Sigríður og Sigurður munu ásamt glæsilegri stórhljómsveit sinni reiða fram sérstaka hátíðardagskrá í anda jólanna.

Sigurður og Sigríður halda hátíðartónleika sína nú í áttunda sinn og er þeir nú þegar orðnir að ómissandi þætti margra í aðdraganda jólanna.

Þau Sigríði Thorlacius og Sigurð Guðmundsson þarf vart að kynna en þau hafa lengi verið á meðal þekktustu og dáðustu söngvara landsins. Bæði hafa þau gert garðinn frægan með hljómsveitum sínum, Sigríður með Hjaltalín og Sigurður með Hjálmum, en jafnframt státa þau af glæstum sólóferlum. Í fyrra kom út platan Það er jól og var hún mesta selda plata jólanna, en hún inniheldur m.a. lög sem hafa sérstaklega komið út fyrir hina árlegu jólatónleika

Það eru einmitt sú plata sem sem verða í forgrunni á tónleikunum í Hörpu, ásamt tveimur hljómplötum þeirra Sigríðar og Sigurður – jólaplöturnar Nú stendur mikið til með Sigurði og Jólakveðja með Sigríði. Auk laga af þessum plötum verða á dagskránni hátíðarlög úr öllum áttum sem Sigurður og Sigríður munu syngja bæði saman og í sitthvoru lagi.

Hér verður um einstaka kvöldstund að ræða þar sem reynt verður að nálgast hið sanna og hátíðlega inntak jólanna.