Tix.is

Event info

ATH Þetta eru fjölskyldutónleikar og eru klukkutíma langir

Það er loksins komið að því. Bræðurnir Friðrik Dór og Jón Jónsson sameina krafta sína á alvöru tónleikum í Bæjarbíói. Strákarnir eru þarna að halda tónleika í sínum heimabæ og að sjálfsögðu varð hið fornfræga Bæjarbíó fyrir valinu.

Á dagskránni verða lög eftir þá félaga sem þeir koma til með að flytja í sitt hvoru lagi og saman, ásamt öðru efni. Þetta eru tónleikar sem enginn ætti að láta framhjá sér fara enda eru þeir bræður þekktir fyrir góða nærveru og mikið stuð.

Tónleikarnir eru fjölskylduvænir.