Tix.is

Event info

Fjölskyldu jólahlaðborð á Geysi

Okkur gleður að kynna að hin sívinsælu fjölskyldu jólahlaðborð verða haldin 5. desember og 12. desember.

Skemmtunin hefst í skóginum kl. 15:00 þar sem fjörugir jólasveinar taka á móti börnunum og foreldrum þeirra og allir njóta yfir ilmandi heitu súkkulaði og trölla pönnukökum. Gestum býðst svo að versla sér jólatré í skóginum og athugið að keyra þarf frá skógarhúsinu að jólatréssölunni og salan þessa daga er eingöngu ætluð fyrir gesti jólahlaðborðsins.

 Jólahlaðborðið hefst svo kl. 17:00 á Geysir veitingahúsi með fallegri jólatónlist og góðum jólamat. Börnin fá hlaðborðið sitt í sinni hæð og er það því mjög aðgengilegt að velja sér kræsingar fyrir börnin. Eftir matinn sameinast allir og við tekur skemmtun þar sem allir koma saman og dansa og syngja.