Halastjarna
Verkið Halastjarna er leiksýning með tveimur leikurum, lifandi hljóðmynd og öflugu sjónarspili með aðstoð myndbanda og lýsingar. Efnistök þess eru bergmálshellar internetsins, félagsleg einangrun í nútíma tæknisamfélagi, stöðug þörf manneskjunnar til að öðlast viðurkenningu og hugmyndir sem æða stjórnlausar áfram.
Verkið er styrkt af Launasjóði listamanna og Mennta- og menningarmálaráðuneytinu.
Höfundur
Kieran Knowles
Leikstjóri
Anna María Tómasdóttir
Leikarar
Anna Gunndís Guðmundsdóttir
Einar Aðalsteinsson
Tónskáld
Birna Eyfjörð Þorsteinsdóttir
Tæknistjóri og ljósahönnuður
Þóroddur Ingvarsson
Leikmynd, búningar og markaðsmál
Hrönn Blöndal Birgisdóttir