Tix.is

Event info

Sennheiser og Iceland Sync kynna tónleika með okkar skærustu tónlistarkonum þar sem skapandi kraftur kvenna verður í fyrirrúmi.

Bríet, Cell7, Klara Elias, Ragga Gröndal, Siggy og Suncity eru allt í senn, margverðlaunaðar söngkonur, rapparar og lagahöfundar sem og nýjar vonarstjörnur í íslensku tónlistarlífi. Þær koma allar saman miðvikudaginn 14.júlí í Gamla bíó og flytja nokkur lög hver. Þar styðja þær sem eru lengra komnar, við þær sem eru að stíga sín fyrstu skref í bransanum.

Húsið opnar kl.19 og hefjast tónleikarnir kl.19.30