Tix.is

Event info

Rífið fram dressið, pússið dansskóna og komið ykkur í stellingar!

Páll Óskar kemur til Stöðvarfjarðar, föstudaginn 2. júlí og tryllir lýðinn á fyrsta alvöru balli ársins!

Húsið opnar klukkan 23:00 og stendur stuðið yfir til klukkan 03:00 (Athugið að tímasetning viðburðarins er auglýst með fyrirvara um mögulegar breytingar)

Miðaverð: 4.500 kr
Forsölu er lokið!
18 ára aldurstakmark
Vínveitingasala á staðnum

Mælt er með því að úða duglega af WD-40 á liðamótin því ekki er vitlegt að vera með danstaugina ryðgaða og fara með rykfallin dansspor á gólfið, því stuðið verður yfirgengilegt!

Ef einhverntíman hefur verið tími til að sletta úr klaufunum, þá er það á Pallaballi í íþróttahúsinu á Stöðvarfirði, þann 2. júlí!

Sjáumst í støði á 'Støð í Stöð'!