Tix.is

Event info

Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir, betur þekkt undir listamannsnafninu Lay Low hefur unnið sér góðan sess í íslensku tónlistarlífi frá því að hún kom fram með fyrstu plötu sína árið 2006. Síðan þá hefur hún sent frá sér fjölmargar útgáfur, unnið í kvikmyndum og leikhúsi auk þess að syngja með hinum ýmsum kollegum sínum.
Nú í sumar heldur hún nokkra huggulega tónleika á vel völdum stöðum um landið, og fimmtudagskvöldið 8. júlí stoppar hún við á Vagninum.