Sönghátíð í Hafnarborg býður upp á tónleika með einum af virtustu kórum landsins. Schola Cantorum flytur íslenska kórtónlist um vináttu, söknuð og ást. Stjórnandi er Hörður Áskelsson.
VINASPEGILL
ÍSLENSK KÓRTÓNLIST UM VINÁTTU, SÖKNUÐ OG ÁST
Schola Cantorum
Hörður Áskelsson stjórnandi
Þjóðlag, úts. Róbert A Ottósson (1912-1974) Vinaspegill (Guðmundur Bergþórsson)
Snorri Sigfús Birgisson (f. 1954) Afmorsvísa (Páll Vídalín)
Þjóðlag, úts. Hjálmar H. Ragnarsson (f. 1952) Stóðum tvö í túni (þjóðvísur úr Víglundarsögu)
María Huld Markan Sigfúsdóttir (f. 1980) Kom vinur (Vilborg Dagbjartsdóttir)
María Huld Markan Sigfúsdóttir Maríuljóð (Vilborg Dagbjartsdóttir)
Jón Hlöðver Áskelsson (f. 1945) Minning um kæran vin (Jón Hlöðver Áskelsson)
Þjóðlag, úts. John Hearne (f. 1937) Fagurt er í fjörðum (Björg Einarsdóttir)
Einsöngur: Rakel Edda Guðmundsdóttir
Haukur Tómasson (f. 1960) Vor hinsti dagur (Halldór Kiljan Laxness)
Þjóðlag, úts. Hafsteinn Þórólfsson (f. 1977) Sofðu unga ástin mín (þjóðvísa)
HLÉ
Jón Ásgeirsson (f. 1928) Hjá lygnri móðu (Halldór Kiljan Laxness)
Jóhann G. Jóhannsson (f. 1955) Þótt form þín hjúpi graflín (Halldór Kiljan Laxness)
Hreiðar Ingi Þorsteinsson (f. 1978) Veistu ef þú vin átt (úr Hávamálum)
Hugi Guðmundsson (f. 1977) Ungur var ég forðum (úr Hávamálum)
Gunnar Andreas Kristinsson (f. 1976) Vin sínum skal maður vinur vera (úr Hávamálum)
Jón Nordal (f. 1926) Smávinir fagrir (Jónas Hallgrímsson)
Sópran
Fjóla Kristín Nikulásdóttir
Ingibjörg Fríða Helgadóttir
Ragnheiður Sara Grímsdóttir
Rakel Edda Guðmundsdóttir
Vigdís Sigurðardóttir
Alt
Auður Guðjohnsen
Hildigunnur Einarsdóttir
Jóhanna Ósk Valsdóttir
Lilja Dögg Gunnarsdóttir
Tenór
Guðmundur Vignir Karlsson
Helgi Steinar Helgason
Þorsteinn Freyr Sigurðsson
Þórhallur Auður Helgason
Bassi
Arnar Freyr Kristinsson
Benedikt Ingólfsson
Björn Bjarnsteinsson
Björn Thorarensen
Örn Ýmir Arason
Tónleikar á Sönghátíð í Hafnarborg 2021:
Þriðjudagur 22.6.2021 kl. 20:00
Fyrri master class tónleikar. Nemendur á fyrra master class námskeiði Kristins Sigmundssonar flytja sönglög og óperuaríur. Matthildur Anna Gísladóttir leikur með á píanó.
Fimmtudagur 24.6.2021 kl. 20:00
Mahler mætir Íslandi. Andri Björn Róbertsson bass-baritón, Hallveig Rúnarsdóttir sópran og Hrönn Þráinsdóttir píanóleikari flytja valin lög úr Des Knaben Wunderhorn eftir Gustav Mahler, auk laga í léttari kantinum eftir Hildigunni Rúnarsdóttur, Tryggva M. Baldvinsson og Þórunni Grétu Sigurðardóttur.
Föstudagur 25.6.2021 kl. 17:00
Út um allt - fjölskyldutónleikar. Ingibjörg Fríða Helgadóttir söngkona, Sigurður Ingi Einarsson gítar- og slagverksleikari og Ingvar Alfreðsson píanóleikari flytja tónleika fyrir alla fjölskylduna. Börn af tónlistarnámskeiði hátíðarinnar koma einnig fram. Ókeypis aðgangur.
Laugardagur 26.6.2021 kl. 17:00
Vinaspegill. Schola Cantorum flytur íslenska kórtónlist um vináttu, söknuð og ást. Stjórnandi er Hörður Áskelsson.
Sunnudagur 27.6.2021 kl. 17:00
Íslensk kventónskáld. Björk Níelsdóttir sópran, Erla Dóra Vogler mezzósópran, Eyjólfur Eyjólfsson tenór, Hafsteinn Þórólfsson baritón og Eva Þyri Hilmarsdóttir píanóleikari flytja tónlist eftir Þórunni Guðmundsdóttur, Jórunni Viðar og önnur íslensk kventónskáld.
Miðvikudagur 30.6.2021 kl. 20:00
Mediterraneo. Alexander Jarl Þorsteinsson tenór, Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir mezzósópran og gítarleikararnir Francisco Javier Jáuregui og Pétur Jónasson flytja tónlist frá löndum sem liggja að Miðjarðarhafinu.
Fimmtudagur 1.7.2021 kl. 20:00
Seinni master class tónleikar. Nemendur á seinni master class námskeiði Kristins Sigmundssonar flytja sönglög og óperuaríur. Helga Bryndís Magnúsdóttir leikur með á píanó.
Laugardagur 3.7.2021 kl. 17:00
Indæla ró – barokktónleikar. Benedikt Kristjánsson tenór, Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir mezzósópran, Pétur Björnsson fiðluleikari, Halldór Bjarki Arnarson semballeikari og Sigurður Halldórsson sellóleikari flytja tónlist eftir G. F. Händel og J.S. Bach í bland við forna íslenska söngva.
Sunnudagur 4.7.2021 kl. 17:00
Óperugala. Gissur Páll Gissurarson tenór, Hanna Dóra Sturludóttir mezzósópran, Kristinn Sigmundsson bassi, Oddur Arnþór Jónsson baritón, Sigrún Pálmadóttir sópran og Guðrún Dalía Salómónsdóttir píanóleikari flytja aríur og samsöngsatriði úr óperum eftir Beethoven, Donizetti, Gounod, Mozart, Nicolai, Saint-Saëns og Verdi.
Allir tónleikarnir fara fram í aðalsal Hafnarborgar við Strandgötu 34 í Hafnarfirði.
Um Sönghátíð í Hafnarborg 2021:
Seigla á Sönghátíð í Hafnarborg 22.6. – 4.7.2021
Sönghátíð í Hafnarborg hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin sem Tónlistarhátíð ársins 2020. Á hátíðinni í ár mætir til leiks einstakt úrval tónlistarmanna með fjölbreytta dagskrá. Seiglan sem hefur hjálpað okkur í gegnum hinn erfiða heimsfaraldur er þema hátíðarinnar í ár. Tónlist og ljóðlist tjá sammannlegar tilfinningar þvert yfir tíma og lönd, hjálpa okkur að skilja okkur sjálf, sjá samhengið á milli okkar og annarra, veita okkur innblástur, kenna okkur að meta fegurð lífsins og gefa okkur vonandi von um betri tíma.
Níu tónleikar verða í boði með framúrskarandi söngvurum, kór og hljóðfæraleikurum sem flytja íslenska og erlenda tónlist frá barokktímanum til okkar daga. Á hátíðinni er einnig boðið upp á ýmis námskeið.
Á Sönghátíð í Hafnarborg er ekki einungis leitast við að leggja rækt við list augnabliksins, heldur er einnig horft til framtíðar með því að birta á YouTube síðu hátíðarinnar valdar myndbandsupptökur af tónleikum og viðtöl við söngvara.
Sönghátíð í Hafnarborg er sjálfstæð hátíð, sem haldin er nú fimmta árið í röð í gjöfulu samstarfi við Hafnarborg. Hátíðin í ár nýtur stuðnings Hafnarfjarðarbæjar, Tónlistarsjóðs, Starfslauna listamanna og Sjóðs Friðriks og Guðlaugar.
Verið velkomin á Sönghátíð í Hafnarborg!
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir og Francisco Javier Jáuregui listrænir stjórnendur og stofnendur Sönghátíðar í Hafnarborg