Tix.is

Event info

Sviðslistahópurinn Bíbí & Blaka kynnir verkið SPOR, gagnvirka danssýningu fyrir börn frá 5 aldri.

SPOR er könnunarleiðangur þar sem leitað er að galdrinum sem felst i orkunni - kraftinum sem býr i öllu. Áhorfendum er boðið í heim þar sem orkan er allstaðar sjáanleg, heyranleg og snertanleg. Orkan í hafinu, á jörðinni, í geimnum og orkan í okkur sjálfum.

Börnin munu fylgja dansandi óbeisluðum orkugjöfum auk þess að kanna undarlegt umhverfið á eigin vegum. Hvaða orka er það sem kviknar í myrkrinu? Erum við orkusugur eða gefum við jafn mikið og við þiggjum?

Lengd sýningar: u.þ.b 40 mínútur
Fjölda þátttakenda: 25 á hverri sýningu.
Sýningar: 4
29. maí kl.14:00 og 16:00
30. maí kl. 13:00. og 15:00

SPOR er unnið í samstarfi við listamenn frá Noregi, Finnlandi, Grænlandi og Færeyjum og mun ferðast og þróast áfram í Grænlandi og Færeyjum.

Verkið er unnið í samstarfi við NAPA og styrkt af Mennta- og menningarmálarráðuneytinu - Leiklistarráði, Listamannalaunum, Barnamenningarsjóði, Nordic Culture Fund og Reykjavíkurborg.
Uppsetningin í Edinborgarhúsinu er styrkt af Uppbyggingarsjóði Vestfjarða.

Höfundar: Bíbí & Blaka
Hönnun innsetningar, leikmuna og búninga: Guðný Hrund Sigurðardóttir
Dans: Tinna Grétarsdóttir
Tónlist og hljóðmynd: Sólrún Sumarliðadóttir
Flytjendur: Valgerður Rúnarsdóttir & Snædís Lilja Ingadóttir
Aðstoðar sviðsmyndahönnuður: Mao
Aðstoðar búningahönnuður: Alexía Rósa Gylfadóttir
Ljósahönnun: Magnús Arnar Sigurðarson, Mari Agge og Hermann Karl Björnsson
Stuttmynd: Lars Skjelbreia
Framkvæmdastjórn: Aude Busson
Grafísk hönnun: Jóhanna Erla // memm hönnunarstofa
Kvikmyndagerð: Carlo Cupaiolo
Ljósmyndir: Owen Fiene

Bíbí & Blaka er hópur listamanna sem að vinnur að sviðsverkum fyrir ung börn og aðstandendur þeirra. Hópurinn samanstendur af Tinnu Grétarsdóttur danshöfundi, Sólrúnu Sumarliðadóttur tónskáldi og Guðnýju Hrund Sigurðardóttur sviðshönnuði auk þeirra flytjenda sem að eru í verkunum hverju sinni.
Bíbí & Blaka hefur ferðast víða bæði innanlands sem erlendis og sýnt verk sín í leikskólum, á hátíðum, í menningarhúsum og leikhúsum.