Undankeppni Dance World Cup á Íslandi 2022
14. mars í Borgarleikhúsinu.
Húsið opnar kl. 10:00, keppnin hefst kl 11:00.
Miðaverð er 3.200 kr.
Aðgöngumiðinn gildir allan daginn og geta gestir komið og farið að vild á meðan húsrúm leyfir. Hleypt verður inn og út úr salnum á milli flokka.
Um 350 dansarar taka þátt í kepnninni ýmist sem einstaklingar eða hluti af litlum eða stórum hópum. 115 atriði verða flutt.
Keppt er um réttinn til að taka þátt í úrslitakeppni Dance World Cup, sem fram fer í San Sebastian á Spáni næstkomandi sumar, fyrir Íslands hönd.
Þrettán skólar og listhópar taka þátt í keppninni.
Röð og tímasetning keppenda verður tilkynnt hér fljótlega sem og á Facebook síðu keppninnar
https://www.facebook.com/DWCIceland/