Tix.is

Event info

Hér geta foreldrar og forráðamenn fermingarbarna í borgaralegri fermingu hjá Siðmennt bókað miða á athöfnina sér að kostnaðarlausu. Við biðjum ykkur um að bóka einungis þann fjölda sæta sem við höfum ráðstafað á hvert fermingarbarn.

Sætaframboð er takmarkað og börn fædd 2015 eða síðar telja ekki með í fjölda gesta.

Ekki þarf að bóka sæti fyrir fermingarbörnin sjálf, en þau sitja sér, fremst við sviðið en ekki á sama stað og foreldrar/gestir.

Grímuskylda er í salnum og mun kerfið tryggja að fjarlægð á milli ótengdra aðila sé meiri en 1 metri eins og gildandi samkomutakmarkanir gera ráð fyrir.