Tix.is

Event info

DIMMA leikur sína fyrstu tónleika á árinu í Bæjarbíói, föstudaginn 28. maí, eftir næstum árs hlé vegna samkomutakmarkanna!
Hljómsveitin hefur þó ekki setið auðum höndum frekar en fyrr, því þeir hafa verið önnum kafnir við að vinna sína sjöttu breiðskífu, sem nú er komin í framleiðslu og ber hún nafnið Þögn.
Þeir eru því orðnir langþyrstir eftir að leika aftur á tónleikum og munu frumflytja glænýtt efni af Þögn í bland við öll sín vinsælustu og þekktustu lög.
Athugið að takmarkað magn miða er í boði á þennan tónleikaviðburð DIMMU, sem enginn sannur rokkunnandi má missa af!

DIMMA
Stefán Jakobsson: Söngur
Ingó Geirdal: Gítar & raddir
Silli Geirdal: Bassi & raddir
Egill Örn Rafnsson: Trommur