Tix.is

Event info

Strengjakvartettinn Spúttnik hefur þá sérstöðu að öll hljóðfærin eru smíðuð af fiðlusmiðnum Jóni Marino Jónssyni. Jón notaði við í hljóðfærin sem rak á land á Höfnum á Reykjanesi þegar skip frá Jamestown strandaði þar árið 1881.

 

Meðal annars verða leiknir kaflar úr verkinu "Dauðinn og Stúlkan" eftir Schubert og sálmurinn "Hærra minn Guð til þín" sem talið er vera síðasta lagið sem strengjakvartett á Titanic lék áður en skipið sökk.

 

Á milli atriða mun Jón Marinó segja frá hljóðfærunum, Jamestownstrandinu og fleiru.

 

Flytjendur:

 

Sigríður Bjarney Baldvinsdóttir 1. fiðla

Hrafnhildur Atladóttir 2. fiðla

Vigdís Másdóttir víóla

Gréta Rún Snorradóttir selló

 

 

Efnisskrá:

 

Franz Schubert

Strengjakvartett í d-moll

1.Kafli Allegro

 

Lowell Mason

Hærra, minn Guð til þín"

 

Jón Leifs

Requiem

 

Franz Schubert

Strengjakvartett í d-moll

2.kafli Andate con moto

 

Íslenskt þjóðlag

Sofðu unga ástin mín