Tix.is

Event info

Kúnstpása Íslensku Óperunnar
Björk Níelsdóttir sópran og Eva Þyri Hilmarsdóttir píanó
23.febrúar 2021, kl. 12:15 í Norðurljósum

Til að gæta öryggis og framfylgja sóttvarnarreglum þarf að panta miða hér í gegnum miðasölukerfi Hörpu, en án aðgangseyris.

Sæti verða númeruð og grímuskylda á tónleiknum.

Efnisskrá
In uomini in soldati – W. A. Mozart úr Cosi fan tutte (Despina)
La Diva de l'Empire – E. Satie (sönglag)
Art is calling for me - V. Herbert úr The Enchantress
Yo soy Maria – A. Piazzolla úr Maria de Buenos Aires
Sjóræningja Jenný – Kurt Weill úr Túskildingsóperunni
Je ne t'aime pas – Kurt Weill (sönglag)
Young April - Deems Taylor (sönglag)  

Íslenska Óperan býður ykkur hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir

Björk Níelsdóttir sópran & Eva Þyri Hilmarsdóttir píanó

Bjo¨rk  hefur komið fram í frumflutningi á fjöldamörgum óperum, leikuppfærslum og tónverkum. Hún hefur tekið þátt í tónleikaferð með Björk og Florence and the Machine sem söng og trompetleikari. Í júní síðastliðnum söng Björk eitt aðalhlutverkið í frumflutningi á óperunni Aarappelvreters eftir David Dramm og Romain Bischoff og var óperan sýnd á Oerol, einni stærstu leiklistarhátíð í Hollandi sem og Karavaan Festival.

Björk Níelsdóttir er fastur meðlimur í Kaja Draksler Oktett, Dúplum dúó, Polyband, Gadus Morhua , Cauda Collective og Stirni Ensemble.

Hún var valin“ bjartasta vonin“ á Íslensku tónlistarverðlaununum 2019 og tilnefnd til Grímuverðalaunanna sem söngvari ársins 2019.

Eva Þyri hefur verið mjög virk í tónlistarlífinu undanfarin ár og hlaut nýverið tilnefningu til Íslensku tónlistarverðlaunanna fyrir geisladisk með sönglögum Jórunnar Viðar, ásamt Erlu dóru Vogler. Hún hefur oft komið fram sem flytjandi kammer- og ljóðatónlistar auk þess að halda einleikstónleika.

Eva Þyri tók þátt í nýstárlegri uppfærslu Íslensku óperunnar á Mannsröddinni eftir Poulanc árið 2017 og starfar