Tix.is

Event info

Leikfélag Keflavíkur setur upp sprenghlægilega gamanleikinn Beint í æð eftir Ray Cooney í þýðingu Gísla Rúnars Jónssonar.  Leikstjóri er Jóel Sæmundsson sem áður hefur leikstýrt hjá okkur söngleiknum Mystery Boy sem hlaut titilinn athyglisverðasta áhugaleiksýningin árið 2018.

Hvað gerir taugaskurðlæknir þegar gömul hjásvæfa hans mætir, óumbeðinn, rétt áður en hann á að flytja mikilvægasta fyrirlestur ferilsins og tilkynnir honum það að hann eigi fullvaxta son? Af hverju er löggan komin í málið? Af hverju grettir Grettir Sig sig? Hvað ætli Súsanna, konan hans, segi? Hvað er Páll Óskar að gera þarna? Hver er Loftur? Hvað er málið með Mannfreð og Gróu? Hvar er yfirheildarhjúkrunarfræðingurinn?

 Allt þetta og svo mikið fleira í Frumleikhúsinu. Skelltu þér í leikhús!


Vegna aðstæðna og sóttvarnarreglna í samfélaginu eru aðeins 100 miðar í boði og þurfa gestir að sitja í númeruðum sætum. Leikfélagið mun sjá til þess að tveir metrar séu á milli allra hópa og því viljum við hvetja hópa til að panta miða saman svo hægt sé að tryggja að allir fái sæti saman.

Öllum gestum sem og starfsfólki er skylt að vera með andlitsgrímu. Gestir mæta með eigin grímu ef kostur gefst, en ef ekki þá verða grímur skaffaðar á staðnum. Engin áfengissala verður á staðnum.

Munum kurteisisbilið, virðum sóttvarnir og sýnum aðgát.


ATH. Sýningum fer fækkandi