Grýlubörn eru tónlistarfólkið Svavar Knútur, Aldís Fjóla og Halldór Sveinsson. Þau halda til byggða og bjóða upp á skemmtilega samverustund í streymi litaða af ýmiss konar jólatónlist í bland við frumsamin lög frá þeim. Markmiðið er að fara hringinn og streyma frá ýmsum stöðum á Norður- og Austurlandi, til að lífga upp á hversdagsleika þeirra og landsmanna.
Engir áhorfendur eru í sal, en hægt er að horfa á streymi á eftirfarandi Facebook síðum:
- Aldís Fjóla
- Svavar Knutur.
Það er frítt inn á tónleikana en ef fólk vill styrkja okkur með bensínpening er hægt að kaupa "miða" hér á tix.
Einlægni og gleði er í fyrirrúmi á þessum notalegu tónleikum.
Grýlubörnin koma við á eftirfarandi stöðum:
3.desember - 20:00 - Veðurteppt í Reykjavík
4.desember - 20:00 - Gamli Baukur, Húsavík
5.desember - 15:00 - Tehúsið, Egilsstöðum
5.desember 20:00 - Fjarðarborg, Borgarfirði eystra
6.desember - 15:00 - Langabúð, Djúpavogi
Sóttvarnir líðandi stundar eru í fyrirrúmi og aðlögum við okkur að aðstæðum hverju sinni.