Tix.is

Event info

Árlegur Peningamálafundur Viðskiptaráðs fer fram 19. nóvember nk. Undanfarið hefur Seðlabankinn stundað umfangsmikil inngrip á gjaldeyrismarkaði á sama tíma og mikil umræða hefur verið um inngrip á skuldabréfamarkaði. Það kallar á spurninguna um hvort og hvenær Seðlabankinn eigi að grípa grípa inn í markaði með beinum hætti. Á fundinum verður fjallað um þetta og annað sem varðar peningastefnuna og hagstjórnina um þessar mundir.

Fundurinn er haldinn 19.nóvember kl. 8:30 - 10:00 og verður í beinni útsendingu í streymi. Frítt er fyrir aðildarfélaga að Viðskiptaráði Íslands og starfsmenn þeirra en almennt miðaverð er 3.000 kr.

Dagskrá:

  • Ávarp Ara Fenger, formanns Viðskiptaráðs Íslands
  • Ávarp Ásgeirs Jónssonar, seðlabankastjóra
  • Innslög með aðildarfélögum að Viðskiptaráði Íslands
  • Pallborðsumræður:
    Erna Björg Sverrisdóttir,  aðalhagfræðingur Arion banka
    Gunnar Jakobsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika