Tix.is

Event info

Þann 4. október eru 50 ár liðin síðan Janis Joplin lést af ofneyslu eiturlyfja. Hún var ein áhrifamesta og vinsælasta söngkona á sjöunda áratug síðustu aldar og er talin í hópi bestu rokksöngkvenna sögunnar.

Bryndís Ásmunds söng- og leikkona er þekkt fyrir túlkun og söng sinn á Janis Joplin, hún tók þátt í leikverki eftir Ólaf Hauk Símonarsson, Janis 27 sem var sett upp í Gamla Bíó árið 2007 og hlaut hún tilnefningu fyrir söng sinn til Grímunnar, eftir að sýningum lauk tók Bryndís hljómsveitina úr verkinu með sér í áframhaldandi tónleikahaldi Janis til heiðurs á helstu tónleika stöðum bæjarins sem og útá landi við miklar undirtektir.
Bryndís Ásmunds ásamt eðalbandi munu nú heiðra bestu rokk söngkonu sögunnar með pomp og prakt í Gamla Bíó þann 21. nóvember næstkomandi.