Tix.is

Event info

Hannesarholt hefur hlúð að sönghefðinni síðastliðin rúm sjö ár með því að bjóða reglulega uppá fjöldasöng í Hljóðbergi. Textar birtast á tjaldi og allir taka undir. Ingibjörg Fríða og Sigurður Ingi stjórna söngstundinni sunnudaginn 22.nóvember kl.14.

Ingibjörg og Sigurður starfa og hrærast í ýmsum stílum tónlistar í íslensku senunni. Ingibjörg Fríða er söngkona með klassíska og rytmíska menntun, syngur í jazz- og popphljómsveitum, klassískum kammerkórum og flytur eigin músík og annarra við ýmis tækifæri. Sigurður Ingi er menntaður slagverksleikari og hefur spilað með rokkhljómsveitum (VAR, Brött Brekka og Man Kind), í leikhúsi og sem meðleikari hjá ýmsum listamönnum. Hann gefur einnig út frumsamda tónlist undir eigin nafni. Saman hafa þau komið víða fram sem tvíeyki, sungið og spilað dægurlög og þjóðlagatónlist ásamt því að kenna tónlistarvinnusmiðjur.

Hannesarholt er opið frá 11.30-17 alla daga nema mánudaga og eldhúsið er opið til kl.14.30 á sunnudögum og framreiðir okkar rómaða helgardögurð.