Tix.is

Event info

Nýjar dagsetningar staðfestar: 22. og 23. jan

Leikhópurinn Casta Diva setur upp AUSU eftir verðlaunahöfundinn Lee Hall í MENGI.

,,Það er alveg sama hvað maður á bágt á meðan maður er að deyja, það er samt yndislegt að vera lifandi “ 

Ausa er einleikur sem  fjallar um unga stelpu sem hefur fengið það flókna verkefni að kynnast dauðanum á barnsaldri. Hún segir sögu sínu og leggur af stað í mikið ferðalag um minningar sínar og hugmyndir um lífið og dauðann. 

Leikritið var frumflutt sem útvarpsleikrit á menningarrás BBC í Bretlandi árið 1997 og hlaut ótrúlegar viðtökur. Ári síðar var verkið sviðsett fyrir BBC2, því var sjónvarpað og fór það svo seinna á leiksvið í Bretlandi. Hér heima var verkið flutt sem útvarpsleikrit árið 2001 og svo sýnt sem sviðsverk árið 2004. 

Leikari: Steinunn Arinbjarnardóttir

Leikstjórn: Tómas Helgi Baldursson

Tónlist og Hljóðmynd: Unnsteinn Manuel Stefánsson

Hljóðmynd og hljóðhönnun: Gunnhildur Birgisdóttir

Þýðing: Jón Viðar Jónsson

Leikmynd: Skúli Sigurðsson

Ljósmyndir: Svanhildur Gréta Kristjánsdóttir

Grafísk hönnun : Júlía Runólfsdóttir