Tix.is

Event info

Hvernig er hægt að gera einfalt salat spennandi? Er hægt að gera gómsætan gosdrykk úr gróðri úr garðinum?

Börnum á aldrinum 6-9 ára býðst að læra á klukkutíma að matreiða spennandi salat og búa til heimagert gos úr uppskerunni fyrir utan Norræna húsið. Árni Ólafur Jónsson, matreiðslumaður og eigandi MATR, kaffihúss Norræna hússins, leiðbeinir börnunum og nýtir hráefni sem auðvelt er að rækta á Íslandi. Þátttakendur fá að taka heim með sér salatolíu sem þeir útbúa.

Ókeypis aðgangur en takmörkuð pláss í boði. 

 Matreiðslunámskeiðið er haldið í tengslum við uppskeruhátíð barnanna í Norræna húsinu sunnudaginn 6. september kl. 12-16. Uppskeran er árangur verkefnisins Sáum, sjáum og smökkum. Frekari upplýsingar um verkefnið má finna hér

Uppskeran við Norræna húsið er að mestu ávöxtur fræja sem koma frá NordGen, samnorrænum genabanka sem varðveitir fræ yfir 33 þúsund tegundna plantna sem þrífast vel á Norðurlöndum. Með varðveislu fræjanna og notkun þeirra er verið að standa vörð um líffræðilega fjölbreytni og um leið stuðla að aðgerðum gegn loftslagsbreytingum.

www.nordichouse.is